Eins og fram hefur komið fer Meistaramót Íslands 11-14 ára fram í Laugardalshöllinni um helgina. 11 keppendur frá UFA taka þátt nú og kepptu 9 þeirra í dag. Ragúel Pino 12 ára, náði mjög góðum árangri þegar hann sigraði 60m hlaupið á tímanum 8,54 sek og 800m hlaupið á 2:34,46 mín. Hann varð svo annar í langstökki með stökk upp á 4,53m. Jón Þorri Hermannsson 11 ára varð annar í langstökki með 4,02m og þá varð hann fjórði í 60m hlaupi og fimmti í 800m hlaupi. Af stúlkunum náði Sesselja Dís 14 ára, bestum árangri í dag þegar hún náði þriðja sæti í kúluvarpi.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.