Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

Alls komu 5 Íslandsmeistaratitlar í hús í dag hjá keppendum UFA. Einnig unnust tvö silfur og tvö brons. Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði í kúluvarpi með 13,45m kasti. Hún sigraði í langstökki þegar hún stökk 5,27m. Þá varð hún önnur í hástökki með 1,60m. Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði í 60m hlaupi á 7,07sek sem er bæting hjá honum. Hann tók ekki þátt í 400m hlaupinu og ætlar að einbeita sér að 200m á morgun. Selma Líf Þórólfsdóttir sigraði í hástökki með 1,54m og endurtók þannig leikinn frá síðustu helgi. Berglind Björk Guðmundsdóttir sigraði í 800m hlaupinu á 2:20,46mín. Fríða Björk Einarsdóttir varð þriðja í kúluvarpinu með 11,08m kasti. Agnes Eva Þórarinsdóttir varð þriðja í langstökki með 5,31m. Þorvaldur Ágúst Jónsson varð annar í 60m hlaupinu á 7,78sek. Þá stóðu Stefán Þór Jósefsson, Guðmundur Freyr Jónsson, Melkorka Ýrr Yrsudóttir og Rún Árnadóttir sig vel þó ekki kæmust þau á verðlaunapall í dag. Öll úrslit í dag má sjá hér .
Hafdís Sigurðardóttir er nú stödd í Stokkhólmi og tekur þar þátt í sterku innanhúsmóti í frjálsum um helgina. Það verður virkilega fróðlegt að sjá hvað hún gerir þar, en um síðustu helgi sýndi hún góða takta á Stórmóti ÍR.
Myndina tók Gunnlaugur Júlíusson.
Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Kolbein Höð Gunnarsson og er þetta í annað sinn á stuttum tíma, sem íþróttamenn í UFA njóta slíkrar athygli. Þetta sýnir að árangur íþróttamannanna í UFA er frábær og verður fróðlegt að sjá hver árangur unga fólksins verður í dag og á morgun.
Myndina tók Gunnlaugur Júlíusson.