• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Bikarkeppni FRÍ um helgina - sex lið skráð

8465327555_71cbebfe18_b_640Sex lið eru skráð til þátttöku í Bikarkeppni FRÍ sem fram fer í Laugardalshöll laugardaginn 16. febrúar. Þau eru Breiðablik, FH, HSK, ÍR sem er bæði með A og B lið og sameiginlegt lið Norðurlands, þ.e. UMSS, UMSE, HSÞ og UFA.
Okkar besta fólk er skráð til keppni og er þetta síðasta stóra mótið hér á landi fyrir keppendur sem stefna á að ná lágmörkum fyrir EM inni í Gautaborg í byrjun mars.
Lesa meira

Myndir frá MÍ 2013

8465330511_4d9fbca84a_b_640

Í myndasafnið eru nú komnar myndir af keppendum UFA á Meistaramóti Íslands inni 2013 sem haldið var um síðustu helgi. Myndirnar má sjá hér.

Lesa meira

Umsóknir óskast - flott tækifæri!

keppendurnir_11__14_a769ra_sem_a769tt_to769ku_fyrir_ho776nd_ufa_og_var_i769_rija_sti_i769_heildarstigakeppninni_a769samt_ja769lfara_si769nu_unnari_vilhja769lmssyni_640Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 11. til 25. júní n.k. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið ólympíuarfleifðin auk þess sem fjallað er um styrkingu ólympíuhugsjónarinnar með nýjum kynslóðum barna og ungmenna.

Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Þeir skulu hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA