Þorbergur Ingi Jónsson langhlaupari úr UFA náði glæsilegum árangri í hálfmarþonhlaupi í Haag um helgina. Hann hljóp á sínu besta tíma til þessa 1:07:54 sem er bæting um eina og hálfa mínútu og þriðji besti tími Íslendings í hálfmaraþoni. Það eru aðeins íslandsmethafinn Kári Steinn Karlsson og fyrrum íslandsmethafi Sigurður Pétur Sigmundsson sem eiga betri tíma og vantar Þorberg innan við þrjár mínútur á Íslandsmet Kára Steins.