
Aníta Hinriksdóttir hleypur í síðar í dag í undanúrslitum 800 m hlaups kvenna. Hún er í seinni riðlinum sem á skv. tímaseðli að hefjast kl. 16:38 að íslenskum tíma. Fyrstu þrjár komast í úrslit sem eru á morgun. Með Anítu í seinni riðli hlaupsins eru keppendur frá Ukraníu og Rússlandi sem báðar eiga tíma undir 2 mín. best., en Aníta er með 5. besta tíman í síðari riðlinum. Hægt er að fylgjast með hlaupinu og mótinu yfirleitt á netútsendingu
hér.Nokkrir Íslendingar fóru sérstaklega til Gautaborgar til að fylgjast með mótinu og þeim Anítu og Kolbeini Heði keppa. Auk þess verða nokkrir Íslendingar sem búsettir eru í Gautaborg og nágrenni á áhorfendapöllunum í dag.