• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Fréttir

Vetrarhlaup

Tæplega þrjátíu hlauparar tóku þátt í öðru vetrarhlaupi vetrarins sem fram fór í morgun. Í karlaflokki var Bjartmar Örnuson fyrstur á 37:26 fast á hæla honum kom Stefán Viðar Sigtryggsson á 38:03 og þriðji í karlaflokki var Halldór Arinbjarnarson á 43:37. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 41:56 önnur var Sigríður Einarsdóttir á 45:21 og þriðja var Helga Árnadóttir á 46:48. Hér má sjá tíma allra sem hlupu í dag og staðan í stigakeppninni eftir tvö fyrstu hlaupin verður uppfærð von bráðar.
Lesa meira

Góður árangur UFA krakka á silfurleikum ÍR

 Silfurleikar ÍR voru haldnir á laugardaginn. Mótið er haldið til að minnast einstaks árangurs Vilhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu, þegar hann hlaut silfurverðlaun í þrístökki. UFA átti sex keppendur á mótinu en keppt er í aldursflokkum og voru keppendur alls um 580 alls staðar að af landinu. Okkar fólk stóð sig mjög vel m.a. má nefna að:

Ásgerður Jana Ágústsdóttir í flokki 13 ára var í fyrsta sæti í hástökki, stökk 1,55 m, fyrsta sæti í 60 m grind á 10,50 sek, þriðja sæti í þrístökki, stökk 9,46 m og 3. sæti í 200 m hlaupi á 29,24 sek

Borgþór Ingarsson í flokki 14 ára varð annar í hástökki, stökk 1,70 m.

Magnús Aríus Ottósson í flokki 12 ára náði fimmta sæti í hástökki, stökk 1,40 m og sjötta sæti í þrístökki, stökk 9,14 m.

Örn Dúi Kristjánsson í flokki 15-16 ára varð í 1. sæti í þrístökki stökk 13,17 m. fyrsta sæti í 60 m grind á 8,90 sek, þriðja sæti í 60 m hlaupi á 7,76 sek og þriðja sæti í 200 m hlaupi á 24,11 sek.

Stefán Þór Jósefsson í flokki 15-16 ára varð annar í 60 m grind á 10,51 sek, fimmta sæti í 800 m hlaupi á 2,34 mín og í fimmta til sjötta sæti í hástökki, stökk 1,60 m.

Nánari upplýsinga rum mótið er að sjá á mot.fri.is

 

 

 

 

 

 

Lesa meira

Nóvembermót HSÞ

Næstkomandi laugardag, 14. nóvember verður Nóvembermót HSÞ haldið á Húsavík. Mótið hefst kl. 13:00 og stendur fram til kl. 17:00. Keppnisgreinar og nánari tímasetningar má sjá á tímaseðli mótsins í mótaforriti FRÍ. UFA stefnir að því að fjölmenna á mótið en þó verður ekki kostuð rúta heldur farið á einkabílum. Þjálfarar taka við skráningum á mótið á æfingum á miðvikudag og fimmtudag og þá verður einnig skipulagt hvernig verður farið, hverjir geta keyrt o.þ.h. Þeir foreldrar sem sjá sér fært að fara með eru beðnir að setja sig í samband við þjálfara.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA