Flýtilyklar
Fréttir
MÍ í 5.000 og 10.000 m hlaupi
Meistaramót Íslands í 5.000 m brautarhlaupi kvenna og 10.000 m brautarhlaupi karla verður haldið á Akureyri næstkomandi sunnudag, samhliða Akureyrarmóti. Keppni í 10.000 m hlaupi hefst kl. 10:00 og 5.000 m hlaupið fer fram kl. 11:00. Hægt er að skrá sig á mótaforriti FRÍ eða með því að senda póst á netfangið rannodd@hi.is og gefa upp nafn og kennitölu.Skráningarfrestur er til kl. 20:00. Mótsgjald er kr. 1250 og skal greiða inn á reikning UFA fyrir kl. 16:00 föstudaginn 15. júlí og senda kvittun á netfangið ufa@ufa.is.
Lesa meira
Akureyrarmótiđ
Akureyrarmótið í frjálsum íþróttum verður haldið helgina 16 og 17. júlí. Allar upplýsingar um mótið má sjá á fri.is undir mót- mótaskrá.
Það vantar starfsmenn þannig að ef fólk hefur tök á að starfa við mótið er það beðið að senda tölvupóst á svansak@internet.is
Lesa meira
Það vantar starfsmenn þannig að ef fólk hefur tök á að starfa við mótið er það beðið að senda tölvupóst á svansak@internet.is
Meira frá Gautaborg
Bjartmar Örnuson hljóp 800m á 1:52,45mín sem er mjög nálægt hans besta tíma, hann varð í 7.sæti í hlaupinu. Hilmar Örn Jórunnarson 13 ára náði frábærum árangri í kúlu, en hann kastaði 11,52m og varð í 4. sæti hann kastaði svo spjóti 32,38m.
Nú er keppni lokið og þá taka við ferðir í Liseberg tívolíið og í Skara sommarland vatnsleikjagarðinn. Góða skemmtun!
Lesa meira
Nú er keppni lokið og þá taka við ferðir í Liseberg tívolíið og í Skara sommarland vatnsleikjagarðinn. Góða skemmtun!