• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Nýr keppnisgalli

UFA hefur verið að vinna í því að fá sér nýjann keppnisbúning og er það mál allt að verða klárt. Ákveðið hefur verið að taka búning frá Henson sem er dökkblár að aðallit með silfruðu munstri en buxurnar verða einlitar. Áætlað verð fyrir gallann er um 9000 krónur en ég hef ekki heyrt frá Henson frá því rétt fyrir jól og bíð spennt eftir því að heyra frá þeim :)


Þar sem innanhússkeppnistímabilið er að hefjast (hafið hjá sumum) langar mig að drífa af fyrstu pöntunina og verð því í íþróttahöllinni á miðvikudaginn næsta frá 17:45, þannig að hægt sé að skoða búninginn, máta (er með mátunarsýnishorn í einhverjum stærðum) og panta. Ef þið komist ekki á þessum tíma getið þið alveg haft samband við mig í síma 865-7224 e. klukkan 16:30 á daginn eða með því að senda mér tölvupóst á þetta netfang majaaldis@gmail.com . Stærðirnar sem um er að ræða eru frá 98 og upp í 158 og svo S, M, L, XL, XXL og XXXL

Bestu kveðjur,
Maja

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA