Alls fá 16 frjálsíþróttamenn styrki úr Afrekssjóði ÍSÍ á þessu ári. Kolbeinn Höður Gunnarsson í UFA er á meðal þeirra einstaklinga sem fá styrk úr sjóði framúrskarandi ungra og efnilegra íþróttamanna. Hamingjuóskir Kolbeinn, með þessa viðurkenningu og óskir um áframhaldandi gott gengi.