Flýtilyklar
Fréttir
Vetrarhlaup við erfiðar aðstæður
Fjórða vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun í fljúgandi hálku. Sextán hlauparar létu það ekki fá sig og skautuðu 10 km hringinn. Fyrstu í mark var Stefán Viðar Sigtryggsson á 41:16 annar var sveitungi hans Snæþór Aðalsteinsson á 44:25 og þriðji var Halldór Arinbjarnarson á 44:40. Fyrst kvenna var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 48:16 önnur var Sigríður Einarsdóttir á 48:39 og þriðja var Vilborg Þórarinsdóttir á 56:00. Í liðakeppninni bar Víkingasveitin sigur úr bítum í þetta sinn og náði þar með sveit Bjargs í samanlögðum stigafjölda og ljóst að þessar tvær sveitir munu bítast áfram um liðaverðlaunin. Hér má sjá úrslitin.
Lesa meira
Æfingar falla niður föstudag 27. jan
Æfingar í höllinni falla niður í dag föstudaginn 27. janúar vegna blakmóts. Æfingar á sunnudag verða hins vegar samkvæmt æfingatöflu.
Lesa meira
Leiðrétt úrslit í fjölþraut
Í frétt um úrslit á MÍ í fjölþrautum hér á síðunni var ranglega farið með úrslit í fimmtarþraut stúlkna 17 ára og yngri. Ásgerður Jana Ágústdóttir úr UFA sigraði í þarutinni. Við óskum Ásgerði Jönu til hamingju með góðan árangur og biðjumst velvirðingar á þessum mistökum í fréttaflutningi.