Flýtilyklar
Fréttir
Vetrarhlaup á laugardag
RIG Hafdís međ mótsmet
Hafdís stóð sig frábærlega en hún sigraði langstökk kvenna er hún stökk 6,14m og setti nýtt mótsmet og bætti sinn persónulega árangur um 12cm hún varð svo í 3.sæti í 60m hlaupi á 7,79sek.
Kolbeinn Höður hljóp 400m á 49,93sek og varð í 4.sæti og bætti með því sinn árangur innanhúss. Ásgerður Jana stökk 1,58m í hástökki og varð í 3.sæti.
Flottur árangur á sterku móti.
Bjartmar íţróttamađur UFA 2011

Uppskeruhátíð UFA fyrir árið 2011 var haldin í gær. Íþróttamaður ársins var heiðraður og veittar viðurkenningar fyrir afrek, framfarir og ástundun. Margir iðkendur UFA náðu góðum árangri á liðnu ári og til að mynda urðu 24 iðkendur íslandsmeistarar í einni eða fleiri greinum.
Íþróttamaður UfA 2011 er Bjartmar Örnuson 800 m hlaupari. Bjartmar varð íslandsmeistari í 800m hlaupi karla innanhúss 2011 og náði verulegri bætingu í þeirri grein á árinu en 800m hlaupið er hans aðalgrein. Bjartmar bætti einnig sinn persónulega árangur utanhúss í 800m hlaupi þegar hann náði þeim glæsilega árangri að koma fjórði í mark á Evrópubikarkeppni A-Landsliða, en það mót fór fram í Reykjavík síðastliðið sumar. Bjartmar hefur sýnt nokkuð stöðugar framfarir síðustu ár og er enn í framför sem afreksíþróttamaður.
Viðurkenningar fyrir bestu afrek karla og kvenna á árinu fengu Bjartmar Örnuson fyrir árangur sinn í 800m hlaupi (997 stig) og Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir fyrir 400m hlaup (927 stig). Viðurkenningar fyrir ástund og framfarir voru veittar í bæði unglingaflokki og meistaraflokki. Í meistaraflokki fengu Kolbeinn Höður Gunnarsson og Ásgerður Jana Ágústsdóttir viðurkenningu fyrir framfarir og Agnes Eva Þórarinsdóttir fyrir góða ástundun. Í unglingaflokki fékk Melkorka Ýr Yrsudóttir viðurkenningu fyrir framfarir og Gígja Teitsdóttir fyrir ástundun.