Flýtilyklar
Fréttir
MÍ fyrri dagur - Hafdís međ ţrjú gull
Nú um helgina er MÍ aðalhluti, þ.e. keppni í karla- og kvennaflokki, haldið í Reykjavík.
Níu keppendur taka þátt frá UFA en heildarfjöldi keppenda er 160.
Hafdís Sigurðardóttir er búin að standa sig frábærlega í dag en hún sigraði í þeim þremur greinum sem hún keppti í og er því orðinn þrefaldur Íslandsmeistari þó seinni dagur mótsins sé eftir. Hún sigraði 60m hlaup á 7,79 sek, 400m hlaup á 56,27 sek og er það bæting hjá henni um 0,53 sek og í langstökki stökk hún 6,11m.
Tími Hafdísar í 400m hlaupinu er besta afrek dagsins en hann skilar henni 1017 stigum.
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð annar í 400m hlaupi á 49,12 sek og bætti með því Íslandsmetið í sínum aldursflokki sem hann setti um sl helgi.
Örn Dúi Kristjánsson varð í 3. sæti í þrístökki en hann stökk 12,87m.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð í 3. sæti í hástökki, stökk 1,61m.
UFA er í 2.sæti í stigakeppni hjá konum og í 3. sæti í heildarstigakeppni mótsins eftir fyrri dag. Þetta er flottur árangur og verður spennandi að fylgjast með gengi þeirra á morgun.
MÍ 15-22 ára. Fimm Íslandsmeistaratitlar og met hjá Kolbeini
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð Íslandsmeistari í 60m grindahlaupi 16-17 ára á 8,37sek og einnig í 200m hlaupi á 22,56sek. Kolbeinn varð svo í 2.sæti í 60m hlaupi á 7,17sek og einnig í 2.sæti í 400m hlaupi á 49,13sek en þar keppti hann í flokki 20-22 ára. Kolbeinn setti Íslandsmet í sínum aldursflokki með þessum tíma, en eldra met átti Einar Daði Lárusson 49,54sek
Sunna Rós Guðbergsdóttir varð Íslandsmeistari í langstökki 15 ára en hún stökk 5,04m hún varð svo í 2. sæti í þrístökki með 10,10m.
Heiðrún Dís Stefánsdóttir varð Íslandsmeistari í 800m hlaupi 18-19 ára á 2:25,12sek.
Strákarnir í boðhlaupssveit 18-19 ára urðu Íslandsmeistarar í 4x200m boðhlaupi á 1:40,41sek í sveitinni voru Eiríkur Árni Árnason, Stefán Þór Jósefsson, Kolbeinn Höður Gunnarsson og Hermann K Egilsson en þeir Kolbeinn og Hermann eru báðir 16 ára.
Agnes Eva Þórarinsdóttir í flokki 18-19 ára varð í 2. sæti í langstökki með 5,50m 2.sæti í þrístökki með 10,72m og 3.sæti í 60m hlaupi á 8,30sek og í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 9,79sek.
Stefán Þór Jósefsson varð í 2. sæti í stangarstökki 18-19 ára með stökk upp á 3,80m og hann varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 9,59sek
Ásgerður Jana Ágústsdóttir í flokki 16-17 ára varð í 3. sæti í hástökki með 1,60m og í 3. sæti í langstökki með 5,02m
Eiríkur Árni Árnason varð í 2.sæti í 200m hlaupi 18-19 ára á 24,41sek.
Stórmót ÍR
Hafdís Sigurðardóttir sigraði langstökk kvenna á mótsmeti þegar hún stökk 6,15m. Þetta er næstbesti árangur íslenskrar konu innanhúss frá upphafi. Hafdís sigraði einnig 400m hlaup kvenna á 56,90 sek og hún varð síðan í 2.sæti í 60m hlaupi á 7,84sek.
Kolbeinn Höður Gunnarsson í flokki 16-17 ára varð í 1.sæti í 60m hlaupi á 7,30sek, 1.sæti í 200m hlaupi á 22,62sek og 1.sæti í 400mhlaupi á 51,94sek
Selma Líf Þórólfsdóttir sigraði í hástökki 15 ára, stökk 1,55m
Heiðrún Dís Stefánsdóttir varð í 1.sæti í 800m hlaupi 18ára og eldri á 2:29,27sek og í 2.sæti í 400m hlaupi á 62,77sek
Stefán Þór Jósefsson varð í 2.sæti í 60m grindahlaupi 18ára og eldri á 9,67sek, 3.sæti í stangarstökki með 3,80m, 3.sæti í kúluvarpi með 10,86m og í 3.sæti í 800m hlaupi á 2:23,42sek
Sunna Rós Guðbergsdóttir varð í 2.sæti í þrístökki 15ára, stökk 10,36m og í 2.sæti í langstökki með 4,79m
Fríða Björk Einarsdóttir varð í 3.sæti í kúluvarpi 14ára stúlkna með 9,97m og Sesselja Dís Heiðarsdóttir varð í 3.sæti í kúluvarpi 13ára stúlkna með 10,0m