Á morgun laugadag fer 6. Bikarkeppni FRÍ fram í Laugardalshöllinni. Sex lið eru skráð til keppni að þessu sinni: Norðurland, sem er sameiginlegt lið frá UFA, UMSE, UMSS og HSÞ, A og B lið ÍR, FH, HSK og BÁF sem er sameiginlegt lið Breiðabliks, Ármanns og Fjölnis. Í fyrra varð lið Norðurlands í 2. sæti en A lið ÍR sigraði. Búast má við spennandi keppni þar sem flest besta frjálsíþróttafólk landsins er skráð til keppni.
Lesa meira
Aðalfundur UFA verður haldinn miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20:00 í kaffiteríu íþróttahallarinnar. Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar.
Lesa meira
Þá er keppni lokið á seinni degi Meistaramóts Íslands. Í dag hélt Hafdís Sigurðardóttir áfram að safna Íslandsmeistaratitlum en hún sigraði í 200m hlaupi á 24,83 sek og sveit UFA í 4x400m boðhlaupi kvenna sigraði á 4:02,19 sek en í henni voru þær Hafdís Sigurðardóttir, Agnes Eva Þórarinsdóttir, Heiðrún Dís Stefánsdóttir og Rakel Ósk Björnsdóttir. Þetta er aldeilis flott afmælishelgi hjá Hafdísi en hún á afmæli í dag, er 25 ára. Þess má geta að Hafdís var að bæta árangur sinn í 60m, 200m og 400m hlaupi og var nálægt sínu besta í langstökki.
Heiðrún Dís Stefánsdóttir varð í 2. sæti í 800m hlaupi á 2:25,12 sek.
Lið UFA varð í 3. sæti í heildarstigakeppninni og einnig í 3. sæti í stigakeppni kvenna, en lið ÍR og FH voru þau lið sem höfðu fleiri stig.
Þetta er frábær árangur hjá íþróttafólki UFA.
Lesa meira