Flýtilyklar
Fréttir
Freydís Bjargmeistari
Keppni í tvíţraut 26. febrúar
Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA og Þríþrautarfélag Norðurlands standa fyrir keppni í tvíþraut sunnudaginn 26. febrúar kl. 10:00 í samvinnu við Sundlaug Akureyrar, Átak heilsurækt, Hleðslu frá MS og Powerade frá Vífilfelli.
Byrjað verður á sundi 400 m, tveir til þrír keppendur verða á hverri braut og verður ræst í nokkrum hópum kl. 10:15, 10:35, 10:55 og 11:15. Eftir það fara keppendur inn í Átak og hlaupa þar 3 km á brettum.Tímataka verður með hefðbundnu þríþrautarsniði, þ.e. ekkert stopp á milli þrauta. Keppt verður í flokkum karla og kvenna 39 ára og yngri og 40 ára og eldri.
Tekið er við skráningum á netfangið elias@ferdamalastofa.is til kl. 22:00 föstudaginn 24. febrúar. Við skráningu þarf að tilgreina nafn, aldur og áætlaðan sundtíma í 400 m sundi. Hámarksfjöldi keppenda er 40 og borgar sig því að skrá sig tímanlega. Þátttökugjald er kr. 1000 og greiðist í afgreiðslu sundlaugarinnar að morgni keppnisdags. Athugið að ekki er tekið við kortum.
Nánari upplýsingar veita Guðmundur í síma: 822 4706 og Elías í síma: 898 9435.
Norđurland í 3.sćti í Bikarkeppni FRÍ
Helsti árangur liðsmanna Norðurlands var eftirfarandi:
Hafdís Sigurðardótir UFA sigraði langstökk en hún stökk 5,96m og varð önnur í 60m hlaupi á 7,85sek.
Kristján Godsk Rögnvaldsson UMSE sigraði 800m hlaup á 1;54,16sek
Björn Margeirsson UMSS sigraði 1500m hlaup á 4;12,11sek.
Bjarki Gíslason UFA varð annar í stangarstökki, stökk 4,40m.
Örn Dúi Kristjánsson UFA varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 8,83sek og í 3. sæti í hástökki með stökk upp á 1,85m
Heiðrún Dís Stefánsdóttir UFA varð önnur í 800m hlaupi á 2;22,13sek.
Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA 3. sæti í 400m hlaupi á 49,76sek.
Rakel Ósk Björnsdóttir UFA 3. sæti í 400m hlaupi á 60,23sek.
Sveinborg Daníelsdóttir UMSE varð í 3. sæti í stangarstökki en hún stökk 2,85m
Guðbjörg Sveinsdóttir UMSE varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 9,54sek.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson UMSS varð í 3. sæti í 60m hlaupi á 7,32sek.
Kvennasveit Norðurlands varð svo í öðru sæti í 4x400m boðhlaupi á 3;57,58 sek og karlasveitin í 4x400m boðhlaupi varð í 3. sæti á 3;26,29sek.