Lokahlaupið í Vetrarhlaupaseríunni fer fram næstkomandi laugardag, 31. mars. Hlaupið hefst að venju við Bjarg kl. 11:00 og verður hlaupinn 10 km hringur. Að hlaupi loknu fer fram verðlaunaafhending fyrir stigakeppni vetrarins í einstaklings- og liðakeppni og dregin verða út útdráttarverðlaun.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.