• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Stefán og Rannveig sigurvegarar í vetrarhlaupi UFA 2011-2012

Síðasta hlaupið í vetrarhlaupasyrpu UFA 2011-2012 fór fram við kjöraðstæður í morgun. Rúmlega þrjátíu hlauparar mættu til leiks og tóku sprettinn í vorblíðunni. Stefán Viðar Sigtryggsson kom að vanda fyrstur í mark að þessu sinni á tímanum 37:47 sem er besti tími vetrarins. Steinsnar á eftir Stefnáni kom Rannveig Oddsdóttir í mark á tímanum 38:07 og bætti þar með eigið brautarmet frá október 2007 um rúma mínútu. Annar karla var Snæþór Aðalsteinsson á 40:17 og þriðji var Halldór Halldórsson á 42:06, önnur kvenna var Sigríður Einarsdóttir á 43:06 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 43:17. Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun fyrir stigakeppni einstaklinga og liða. Í stigakeppni karla sigraði Stefán Viðar, annar var Snævar og þriðji Halldór Arinbjarnarson, í stigakeppni kvenna var Rannveig í fyrsta sæti, Sigríður í öðru sæti og Sonja í þriðja sæti og hlutu þau vegleg verðlaun frá Under Armour. Í liðakeppninni bar Víkingasveitin sigur úr bítum en hana skipuðu þeir Stefán Viðar og feðgarnir Aðalsteinn, Snævar og Hlynur frá Víkingavatni í Kelduhverfi. Styrktaraðilar hlaupsins, Bjarg, Altis, Craft, Halldór Ólafsson úr og skart ehf, Nói Síríus og Bautinn gáfu útdráttarverðlaun sem dregin voru út að hlaupinu loknu. Hér má sjá úrslit allra hlaupanna.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA