Helstu fréttir frá seinni degi Meistaramóts Íslands eru þær að 14 ára stelpurnar urðu Íslandsmeistarar í 4x200m boðhlaupi á 1:54,90sek og í stigakeppninni urðu þær í 2. sæti. Í boðhlaupssveitinni voru þær Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir, Berglind Björk Guðmundsdóttir, Rún Árnadóttir og Bríet Ósk Ólafsdóttir. Bríet Ósk Ólafsdóttir varð svo í 3. sæti í langstökki 14 ára en hún stökk 4,81m. UFA varð í 9. sæti í heildarstigakeppninni.
Lesa meira
Meistaramót 11-14 ára fer fram í Laugardalshöllinni nú um helgina. Keppendur eru samtals 363 frá 19 félögum víðs vegar að af landinu. Frá UFA eru19 keppendur skráðir til leiks. Þessir keppendur eru búnir að standa sig vel í dag og vera félaginu til sóma. Einn Íslandsmeistaratitill vannst en Hilmar Örn Jórunnarson varð Íslandsmeistari í kúluvarpi 14 ára stráka, en hann varpaði kúlunni 11,66m
Þorvaldur Ágúst Jónsson varð í 3-4. sæti í hástökki 14 ára en hann stökk 1,56m og hann varð í 3. sæti í 60m hlaupi á 8,03sek
Bríet Ósk Ólafsdóttir varð önnur í 60m hlaupi 14 ára á 8,48sek
Berglind Björk Guðmundsdóttir 14 ára varð önnur í 800m hlaupi á 2:36,77sek
Sesselja Dís Heiðarsdóttir varð í 3.sæti í kúluvarpi 13 ára stelpna með kast upp á 10,03m
Áfram UFA á morgun!
Lesa meira
Fimmta vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun í fallegu vetrarveðri, en svolítilli hálku. Stafán Viðar Sigtryggsson var fyrstur í mark á 39:57 annar karla var Benedikt Sigurðsson á 42:06 og þriðji var Snæþór Aðalsteinsson á 44:07. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 40:52, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 46:03 og þriðja var Sigríður Einarsdóttir á 47:51. Víkingasveitin náði bestum samanlögðum tíma þeirra sveita sem kepptu í dag og skaust þar með fram úr Bjarg-sveitinni, enn getur þó allt gerst og ljóst að úrslitin munu ráðast í síðasta hlaupinu sem fer fram eftir mánuð.
Hér má sjá úrslit allra hlaupa og stöðuna í stigakeppninni. Lesa meira