1. maí hlaup UFA fór fram í morgun í blíðskaparveðri. Um 400 hlauparar á öllum aldri tóku sprettinn. Leikskólabörnin hlupu 400 m hring á vellinum og grunnskólanemendur og fullorðnir ýmist 2 eða 5 km. Í skólakeppninni bar Giljaskóli sigur úr bítum í flokki fjölmennra skóla með 12,2% þáttöku, Oddeyrarskóli var í öðru sæti með 9,9% þáttöku og Brekkuskóli var í þriðja sæti með 8,9% þáttöku. Í flokki fámennra skóla sigraði Hríseyjarskóli með 83,3% þáttöku, í öðru sæti var Þelamerkurskóli með 47,1% og í þriðja sæti var Valsárskóli með 4,5% þátttöku. Að hlaupi loknu var boðið upp á Pizzur frá Greifanum og Svala og nokkrir heppnir þátttakendur hlutu útdráttarverðlaun frá Sportveri.
Úrslit í 5 km hlaupi verða birt hér á síðunni í kvöld.