Úrslitin í 5 km hlaupinu eru nú komin hér inn á síðuna og þar má sjá röð og tíma allra sem hlupu 5 km. Alls hlupu 120 hlauparar þessa vegalengd og var gaman að sjá hvað hópurinn var fjölbreyttur, ungir og gamlir, af öllum stærðum og gerðum, þeir yngstu 9 ára og sá elsti 74 ára.
Eins og í fjölmörgum öðrum hlaupum UFA á undanförnum árum var það Stefán Viðar Sigtryggsson sem kom fyrstur í mark á tímanum 17:44 í öðru og þriðja sæti í karla voru tveir ungir og efnilegir hlauparar sem báðir eru í Lundarskóla, Ívar Sigurbjörnsson sem hljóp kílómetrana fimm á 18:37 og Bjarki Þór Viðarsson sem hljóp á 19:09. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á tímanum 18:51, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 21:04 og þriðja var Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir á 23:50.
Þeir sem hafa ábendingar varðandi úrslitin geta komið þeim á framfæri með því að senda póst á netfangið: rannodd@hi.is