Nú er sumarið komið og því færum við allar æfingar út á Þórsvöll. Æfingatímar breytast jafnframt lítið eitt. Næstu tvær vikur, þar til sumartaflan tekur gildi mánudaginn 4. júní verða æfingar fyrir 10 ára og yngri á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:00-17:00 og æfingar fyrir 11-14 ára verða kl. 17:00-18:00 alla virka daga nema þriðjudaga. Við minnum jafnframt á að út maí bjóðum við upp á fríar æfingar fyrir nýja iðkendur. Og hvetjum við alla áhugasama til að nýta tækifærið til að koma og prófa.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.