• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Góður árangur hjá Hafdísi og Kolbeini

Hafdís Sigurðardóttir sigraði örugglega í 100 og 200m hlaupi kvenna á vormóti ÍR sem haldið var á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Tími hennar í 100m hlaupinu var 12,21sek og í 200m hlaupinu 24,70sek. Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 400m hlaup karla á 50,70sek og varð í 3.sæti í 100m hlaupi á 11,33sek.
Lesa meira

Röng æfingatafla í dagskránni

Þau mistök urðu í uppsetningu á æfingatöflu í auglýsingu í Dagksránni að æfingar yngstu flokka voru ekki settar á rétta daga. Hið rétta er að æfingar fyrir flokkar 7 ára og yngri og 8-10 ára eru á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
Lesa meira

Vel heppnað maraþonboðhlaup

Maraþonboðhlaup FRÍ til styrktar ólympíuförum í frjálsum íþróttum var haldið á Akureyri, Reykjavík og Egilsstöðum í gærkvöldi og stóð UFA fyrir framkvæmd hlaupsins á Akureyri. Ágæt þátttaka var í hlaupinu en 12 sveitir mættu til leiks í spennandi keppni. Keppt var í tveimur flokkkum sveita, sveitum skipuðum körlum í meirihluta og sveitum skipuðum konum í meirihluta. Bestum tíma náði sveit UFA 1 skipuð þeim Þorbergi Inga Jónssyni og Bjartmari Örnusyni en þeir hlupu á tímanum 1:15:32, öðrum besta tíma sveita 1:22:54 náði sveitin Með grátt í vöngum, skipuð Sævari Helgasyni, Gísla Einari Árnasyni, Þorleifi Stefánni Björnssyni, Halldóri Arinbjarnarsyni, Guðjóni Marteinssyni, Pálma Óskarssyni og Trausta Hannessyni, þriðja bresta tíma sveita og besta tíma kvennasveita náðu svo Hádegisvalkyrjurnar á Bjargi, Rannveig Oddsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Sonja Sif Jóhannsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir en þær hlupu á tímanum 1:25:02. Úrslitin verða birt á Hlaupasíðunni.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA