Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks fer fram í kvöld og hefst keppni kl. 20:00. Góð þátttaka er í hlaupinu, 150 manns eru nú skráðir sem er meira en verið hefur undanfarin ár. Meðal keppenda eru margir af okkar bestu langhlaupurum. Ber þar fyrst að nefna Kára Stein Karlsson maraþonhlaupara sem mun í kvöld reyna að bæta 29 ára gamalt íslandsmet í 10 km götuhlaupi.
Við hvetjum bæjarbúa til að flykkjast út á götu og hvetja hlaupara -og þá ekki síst Kára Stein sem reynir við íslandsmetið. Rás- og endamark er við á Átak í Strandgötu og hlaupaleiðin liggur um eyrina (Strandgata, Hjalteyrargata, Tryggvabraut) og suður Glerárgötu og Drottningarbraut. Hlauparar verða á ferðinni um eyrina milli kl. 20:00 og 20:30 og á Drottningarbrautinni frá 20:10-22:00. Íslandsmetið í 10 km hlaupi karla er 30:11 svo gera má ráð fyrir að Kári Steinn hlaupi í mark kl. 20:30. Við biðjum bæjarbúa jafnframt að sýna hlaupurum tillitsemi í umferðinni og aka varlega um þessar götur á meðan á hlaupi stendur.
Skráningu lauk í gærkvöldi, en ef einhverjir hafa misst af forskráningunni og langar að vera með verður hægt að skrá sig í Átaki milli kl. 18:00 og 20:00.