Akureyrarhlaup Íslenskra Verðbréfa og Átaks fer fram næstkomandi fimmtudag og hefst við Átak kl. 20:00. UFA sér um framkvæmd hlaupsins og rennur allur ágóði af hlaupinu til barna og unglingastarfs UFA. Skráning er hafin á hlaupasíðunni (hlaup.is) og verður hægt að skrá sig þar til kl. 20:00 á miðvikudag, einnig verður tekið við skráningum í Átaki milli kl. 16:00 og 20:00 á miðvikudag. Við hvetjum unga sem aldna til að taka fram hlaupaskóna og taka þátt í þessu skemmtilega almenningshlaupi. Hægt verður að hlaupa 5 km, 10 km og hálft maraþon og er keppt í nokkrum aldursflokkum. Nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á heimasíðu þess akureyrarhlaup.is.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.