Nórðurlandamót 19ára og yngri verður haldið í Vaxjö í Svíþjóð um næstu helgi. Sextán keppendur hafa verið valdir til keppni þar, en Íslendingar senda sameiginlegt lið með Dönum eins og áður, og geta því aðeins sent einn keppanda í grein. Þau Ásgerður Jana Ágústsdóttir og Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA hafa verið valin og mun Ásgerður Jana keppa í hástökki og kúluvarpi en Kolbeinn Höður í 200m og 400m hlaupum ásamt 4x100m og 4x400m boðhlaupum.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.