Langar ţig ađ hlaupa?
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks fer fram í kvöld og hefst keppni kl. 20:00. Góð þátttaka er í hlaupinu, 150 manns eru nú skráðir sem er meira en verið hefur undanfarin ár. Meðal keppenda eru margir af okkar bestu langhlaupurum. Ber þar fyrst að nefna Kára Stein Karlsson maraþonhlaupara sem mun í kvöld reyna að bæta 29 ára gamalt íslandsmet í 10 km götuhlaupi.
Við hvetjum bæjarbúa til að flykkjast út á götu og hvetja hlaupara -og þá ekki síst Kára Stein sem reynir við íslandsmetið. Rás- og endamark er við á Átak í Strandgötu og hlaupaleiðin liggur um eyrina (Strandgata, Hjalteyrargata, Tryggvabraut) og suður Glerárgötu og Drottningarbraut. Hlauparar verða á ferðinni um eyrina milli kl. 20:00 og 20:30 og á Drottningarbrautinni frá 20:10-22:00. Íslandsmetið í 10 km hlaupi karla er 30:11 svo gera má ráð fyrir að Kári Steinn hlaupi í mark kl. 20:30. Við biðjum bæjarbúa jafnframt að sýna hlaupurum tillitsemi í umferðinni og aka varlega um þessar götur á meðan á hlaupi stendur.
Skráningu lauk í gærkvöldi, en ef einhverjir hafa misst af forskráningunni og langar að vera með verður hægt að skrá sig í Átaki milli kl. 18:00 og 20:00.
Það var 28 manna hópur frá UFA sem keppti á Meistaramóti Íslands 11-14ára sem fram fór um helgina, í sól og blíðu, á Laugardalsvellinum. UFA lenti í 4.sæti í heildarstigakeppninni sem er frábær árangur en alls tóku 268 keppendur þátt, frá 19 félögum og samböndum. Keppendur UFA voru 28 talsins.
Stelpurnar í flokki 14ára urðu í 2.sæti í stigakeppninni aðeins 5 stigum á eftir liði Breiðabliks.
Að keppni lokinni á laugardaginn fór svo allur hópurinn í Nauthólsvíkina.
Þrír Íslandsmeistaratitlar unnust en Raguel Pino 11 ára varð Íslandsmeistari í 60m hlaupi stráka á 8,98sek,
Berglind Björk Guðmundsdóttir varð Íslandsmeistari í 800m hlaupi 14 ára stelpna á 2:32,79sek
og 14 ára stelpurnar urðu svo Íslandsmeistarar í 4X100m boðhlaupi á 54,53sek en í sveitinni voru þær Selma Líf Þórólfsdóttir, Berglind Björk Guðmundsdóttir, Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir og Bríet Osk Ólafsdóttir.
Annar helsti árangur var eftirfarandi:
Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir 14 ára: 3.sæti spjótkast 32,25m
Sigþór Gunnar Jónsson 14 ára: 3.sæti langstökk 5,36m
Aldís Ásta Heimisdóttir 13ára: 2.sæti spjótkast 28,41m og 2-3.sæti hástökk 1,36m
Raguel Pino 11ára: 3.sæti kúluvarp 8,66m
Bríet Ósk Ólafsdóttir 14ára: 3.sæti 100m hlaup 13,62sek
Þorvaldur Ágúst Jónsson 14ára: 3.sæti 100m hlaup 12,47sek
Líney Lilja Þrastardóttir 11ára: 2.sæti 60m hlaup 9,0sek og 2.sæti langstökk 3,93m
Fríða Björk Einarsdóttir 14ára: 3.sæti kúluvarp 10,38m
Gunnar Auðunn Jónsson 11ára: 2.sæti spjótkast 27,54m
Boðhlaupssveitirnar stóðu sig vel en auk þess að 14 ára stelpurnar hafi orðið Íslandsmeistarar, urðu 14 ára strákarnir í 2.sæti en í sveitinni voru þeir Sölvi Halldórsson, Kári Ármannsson, Sigþór Gunnar Jónsson og Þorvaldur Ágúst Jónsson, þeir hlupu á 53,36sek.
11 ára strákarnir urðu í 3.sæti á 1:06,64sek í sveitinni voru: Raguel Pino, Júlíus Orri Ágústsson, Gunnar Auðunn Jónsson og Baldur Örn Jóhannesson.
11ára stelpurnar náðu einnig 3.sæti í boðhlaupinu en þær hlupu á 1:07,25sek í sveitinni voru: Anna Þyrí Halldórsdóttir, Ingunn Alda Sævarsdóttir, Hrefna Ottósdóttir og Líney Lilja Þrastardóttir
Þó hér hafi verið talin upp verðlaunasæti voru allir að standa sig vel og margir að bæta sinn árangur - Til hamingju UFA keppendur og þjálfarar!
