Lið UFA varð í 5. sæti í stigakeppninni á Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem lauk í dag. Fjöldi Íslandsmeistaratitla kom í hlut UFA keppenda í dag. Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari í dag, en hún sigraði spjótkast 16-17 ára, kastaði 41,12m og hún sigraði einnig hástökkið með stökk upp á 1,60m hún varð önnur í kúluvarpi,kastaði 12,29m og þriðja í 200m hlaupi á 27,97sek
Stefán Þór Jósefsson varð Íslandsmeistari í þrístökki 18-19 ára, stökk 12,06m og annar í 110m grindahlaupi á 17,99sek.
Agnes Eva Þórarinsdóttir vann tvo Íslandsmeistaratitla, hún sigraði spjótkast 18-19 ára með 26,70m og 800m hlaup á 2:43,58sek og varð önnur í þrístökki með 10,02m
Kolbrún Helga Hansen vann einnig tvo Íslandsmeistaratitla en hún sigraði hástökk 20-22 ára með 1,30m og 800m hlaup á 3:04,23sek
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð Íslandsmeistari í 200m hlaupi 16-17 ára á 22,41sek
Lesa meira
Meistaramót Íslands 15-22 ára fer fram á Sindravöllum í Höfn í Hornafirði nú um helgina. Keppendur eru 125 frá 13 félögum og samböndum, frá UFA eru keppendur sex talsins að þessu sinni. Í dag var helsti árangur eftirfarandi:
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð Íslandsmeistari í 100m hlaupi 16-17 ára á 11,02sek og einnig í 400m hlaupi á 54,43sek.
Agnes Eva Þórarinsdóttir varð Íslandsmeistari í 400m hlaupi 18-19 ára á 63,86sek, í öðru sæti í langstökki með 5,02m, í þriðja sæti í 100m hlaupi á 13,95sek og í þriðja sæti í kringlukasti með 26,64m
Kolbrún Helga Hansen varð Íslandsmeistari í 1500m hlaupi 20-22 ára ára á 6:13,07sek
Ásgerður JanaÁgústsdóttir varð Íslandsmeistari í kringlukasti 16-17 ára með kast upp á 27,86m og í öðru sæti í langstökki en hún stökk 5,09m
Einar Ásgeir Einarsson varð í öðru sæti í 1500m hlaupi 18-19 ára á 4:45,59sek
Stefán Þór Jósefsson varð annar í langstökki 18-19 ára, stökk 5,72m og þriðji í stangarstökki með 3,80m
Eftir fyrri dag er UFA í 5.sæti í heildarstigakeppninni.
Lesa meira
Hafdís Sigurðardóttir keppti nú um helgina á móti í Mölndal í Svíþjóð, mótið er síðasti hluti Grand prix mótaraðar sem Hafdís hefur tekið þátt í, í sumar. Hafdís hljóp 200m hlaupið mjög vel og sigraði á glæsilegum tíma, 24,0sek sem er 3.besti tími ísl. konu frá upphafi. Henni tókst ekki eins vel upp í langstökkinu, stökk 5,86m og hljóp 100m á 12,09 og varð í 3.sæti.
Lesa meira