Hausthlaup UFA

Fimmtudaginn 20. september stendur Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA fyrir 10 km keppnishlaupi. Hlaupið verður frá Átaki við Strandgötu, sömu leið og í Akureyrarhlaupi (hringur um eyrina og síðan suður eftir Drottningarbraut fram að flugvelli þar sem snúið er við). Skráning fer fram á staðnum frá kl. 17:30 og er þáttökugjald kr. 500. Hlaupið verður síðan ræst kl. 18:00. Hlauparar geta nýtt sér búningsaðstöðu, sturtur og heita potta í Átaki.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA