Rannveig Oddsdóttir langhlaupari úr UFA átti gott hlaup í Berlínarmaraþoni í morgun. Rannveig hljóp á sínum besta tíma til þessa 2:52:39 sem er annar besti tími íslenskrar konu í maraþonhlaupi. Rannveig var 24 kona í mark í hlaupinu og fimmta í sínum aldursflokki.