Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
Í dag er síðasta æfing sumarsins hjá yngstu flokkunum þ.e. 8 til 10 ára og 7 ára og yngri. Þá verður síðasta æfing sumarsins hjá 11 - 15 ára á föstudaginn en þau ljúka tímabilinu með þátttöku í Bikarkeppni FRÍ, sem haldin verður í Laugardalnum í Reykjavík næskomandi sunnudag 19. ágúst. Reiknað er með því að hefja æfingar að nýju í byrjun september og verða tímasetningar auglýstar með vefpósti og hér á heimasíðunni.
Stjórn UFA þakkar öllum iðkendum og þjálfurum fyrir gott og árangursrikt sumar. Vonumst við til að sjá sem flesta iðkendur koma á æfingar aftur í haust.
Íþróttamannanefnd FRÍ er nefnd sem fjallar um málefni sem sérstaklega varða íþróttafólk og á að vera stjórn FRÍ til ráðgjafar um þau mál. Á MÍ í síðasta mánuði voru 5 einstaklingar kjörnir í nefndina af keppendum mótsins. Þau sem kjörin voru eru Aníta Hinriksdóttir ÍR, Ásdís Hjálmsdóttir Ármanni, Dagur Fannar Magnússon HSK, Hafdís Sigurðardóttir UFA og Ingi Rúnar Kristinsson Breiðabliki.