Flýtilyklar
Fréttir
Úrslit í ţríţraut
Um helgina stóð Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA ásamt Þríþrautarfélagi Norðurlands fyrir þríþraut á Hrafnagili. Keppt var í 400 m sundi, 10 km hjólreiðum og 3 km hlaupi. Í karlaflokki sigraði Finnur Dagsson á 37:33, annar var Unnsteinn Jónsson á 43:12 og þriðji var Valdimar Pálsson á 43:26. Í kvennaflokki voru Anna Lilja Valdimarsdóttir og Bryndís Bolladóttir jafnar á 44:54 og þriðja var Rachael Lorna Johnstone á 46.16. Úrslitin öl má sjá hér.
Lesa meira
Ćfingatafla vetrarins
Æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu vetrarins í næstu viku. Æfingar hjá 6. bekk og eldri frá og með mánudegi 10. september en hjá 3. - 5. bekk 11. september. Skráning í íþróttaskóla fyrir 8 ára og yngri fer fram á UFA degi í höllinni sunnudaginn 16. september kl. 13:00-15:00 og ef næg þátttaka fæst munu æfingar hefjast fimmtudaginn 20. september.
Æfingar í vetur verða sem hér segir:
Æfingagjöld fram til áramót eru:
8 ára og yngri kr. 7.000
3.–5. bekkur kr. 15.000
6.–8. bekkur kr. 20.000
9. bekkur og eldri kr. 25.000
Vetrarćfingar
Æfingatafla vetrarins er í smíðum og verður væntanlega klár á fimmtudag og verður þá birt hér á síðunni.
Lesa meira