• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Aldursflokkamót UMSE á Þórsvelli

UMSE býður til frjálsíþróttamóts á Þórsvelli á Akureyri, 29.-30. ágúst. Mótið er opið öllum, en einnig keppa aðildarfélög UMSE til stiga á mótinu. Mótið hefst kl. 17:00 báða dagana. Þeir UFA félagar sem hafa hug á því að taka þátt í mótinu er bent á að senda upplýsingar um sig og í hvaða greinum þeir vilja taka þátt á netfangið gg@akmennt.is fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 28. ágúst. Alla flokka og greinar má sjá á mótaforriti FRÍ. Þátttökugjöld eru 750 kr. í þrautabraut, 9 ára og yngri og 500 kr á grein fyrir 10 ára og eldri. Þeir UFA félagar sem ætla að taka þátt eru beðnir um að leggja þátttökugjöldin inn á reikning UFA og setja í skýringu nafn og mót.

Lesa meira

Norðurland varð í þriðja sæti í Bikar

Noðrurland, sameinað lið UFA, UMSE, UMSS og HSÞ, varð í þriðja sæti í 47. Bikarkeppni FRÍ sem fram fór á Þórsvelli um helgina. Þetta var frábær árangur hjá liðinu og munaði ekki nema 11,5 stigum á Norðurlandi og FH sem varð í öðru sæti. ÍR vann keppnina hins vegar mjög sannfærandi. Annars urðu úrslit sem hér segir:
Lesa meira

Ólympíufarar keppa á Þórsvelli um helgina

Ólympíufararnir Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki og Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH verða meðal keppenda á 47. Bikarkeppni FRÍ sem fram fer á Þórsvelli um helgina. Þá liggur fyrir að auk þeirra eru nánast allt besta og efnilegasta frjálsíþróttafólkið okkar meðal keppenda. Það verður fróðlegt að sjá hvað Hafdís Sigurðardóttir gerir í langstökki, en það bíða margir eftir stóra stökkinu hennar. Hugsanlega kemur það um helgina. Komið og fylgist með. Nóg er plássið í stúkunni.

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA