• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Nóvembermót UFA 2012

Ungmennafélag Akureyrar býður til UFA móts í Bogunum á Akureyri sunnudaginn 11. nóvember kl. 10.45 – 16.00. Mótið er öllum opið en keppt er í flokkum frá 9 ára og yngri upp í karla- og kvennaflokk.

Ungmennafélag Akureyrar býður til UFA móts í Bogunum á Akureyri sunnudaginn 11. nóvember kl. 10.45 – 16.00. Mótið er öllum opið en keppt er í flokkum frá 9 ára og yngri upp í karla- og kvennaflokk. Húsið opnar kl. 10.15.

Keppnisflokkar, keppnisgreinar

Endanlegur tímaseðill verður gefinn út í síðasta lagi að kvöldi föstudagsins 9. nóvember.

9 ára og yngri
Þrautabraut að hætti þjálfara UFA
10 - 11 ára Keppnisgreinar:
60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, kúluvarp, 600m og skutlukast.   

12 – 13 ára Keppnisgreinar:

60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, kúluvarp, 600m og skutlukast.   

14 - 15 ára Keppnisgreinar:

60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, Stangarstökk, kúluvarp og 600m.   
16 ára og eldri  Keppnisgreinar:
60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, stangarstökk, kúluvarp, 600m
Fyrirkomulag keppninnar   

Hástökk og stangarstökk:                    

Hver keppandi má einungis fella sex sinnum í keppninni.

Kúluvarp og langstökk allir flokkar:

Í öllum aldursflokkum eru fjórar tilraunir á hvern keppanda.

Hlaupagreinar:

Í hlaupum gilda bestu tímar til sæta en ekki verða hlaupin úrslitahlaup.

Tímaseðill:

Keppni hefst kl. 10.45 og lýkur kl. 16.00

Verðlaun:

9 ára og yngri: Allir fá verðlaunapening fyrir þátttöku í þrautabrautinni. 

11 ára og eldri: Verðlaun verða veitt fyrir fyrsta sæti í hverri grein í hverjum aldursflokki.

Skráning:                            

Skráningar berist í gegnum mótaforrit FRÍ (www.fri.is) eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 9. nóvember.

Skráningargjöld:

2000 kr á hvern keppanda 15 ára og yngri – innifalið: Pizzuveisla

2500 kr á hvern keppanda 16 ára og eldri – innifalið: Pizzuveisla

Skráningargjöld greiðist fyrirfram inn á reikning UFA: 1145-26-7701, Kt. 520692-2589. Kvittun sendist á throlli@simnet.is    

Óskað er eftir að hvert félag geri upp í einni heild fyrir keppendur sína.

Nánari upplýsingar um mótið fást hjá Gunnari Gíslasyni sími 892 1453– gg@akmennt.is   

                                                                                             


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA