Hlauparar létu hálkuna ekki á sig fá og mættu vel í vetrarhlaupið í morgun. Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark og hálkan tafði för hans ekki meira en það að hann hljóp á nýju brautarmeti 34:29. Fyrra met átti Björn Margreisson (34:51) sett i gamlárshlaupi 2008. Annar í mark var Sigurbjörn Árni Arngrímsson sem hljóp á 37:25, -villtist reyndar aðeins af leið en hljóp fulla 10 km og var langt á undan næsta manni, Kolbeini Höð Gunnarssyni sem hljóp á 41:05. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 41:07, önnur var Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir á 46:42 og þriðja var Sigríður Einarsdóttir á 47:20. Sex sveitir voru fullskipaðar að þessu sinni og lítur út fyrir spennandi stigakeppni í liðakeppninni. Eyrarskokk 1 sigraði í liðakeppninni í dag, sveit Bjargs var í öðru sæti og Víkingasveitin í þriðja sæti. Hér má sjá tíma allra og stöðuna í stigakeppninni.
Langar ţig ađ hlaupa?
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.