• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Fréttir

Íþróttamaður UFA 2012

Íþróttamaður UFA árið 2012 er Rannveig Oddsdóttir langhlaupari. Rannveig er götuhlaupari ársins á Íslandi í kvennrannveig_oddsdo769ttir_640aflokki. Hún hefur bætt árangur sinn jafnt og þétt undanfarin ár. Rannveig náði sínum besta árangri í 10 km hlaupi í sumar en þá hljóp hún á tímanum 37:11 í Akureyrarhlaupinu. Hún tók þátt í Berlínarmaraþoninu í október þar sem hún náði öðrum besta tíma Íslendings frá upphafi 2:52,3. Þessi árangur fleytti henni inn í Ólympíuhóp FRÍ 2016.
Lesa meira

Viðurkenningar fyrir framfarir og ástundun

gya_og_berglind_640jana_og_rakel_640Á uppskeruhátíð UFA fyrir árið 2012 var fjórum íþróttamönnumfélagsins veitt viðurkenning fyrir góða ástundun og mestu framfarir á árinu. Í unglingaflokki  voru það Gígja Teitsdóttir sem fékk viðurkenningu fyrir góða ástundun og Berglind Björk Guðmundsdóttir sem fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir.

 

Í meistaraflokki voru það Ásgerður Jana Ágústsdóttir sem fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir og Rakel Ósk Björnsdóttir sem fékk viðurkenningu fyrir góða ástundun.

Lesa meira

Viðurkenning fyrir bestu afrekin 2012

Hafdís Sigurðardóttir og Kolbeinn Höður Gunnarsson unnu bestu afrekin af íþróttamönhafdis_og_kolbeinn_640num í UFA á árinu 2012. Fyrir það var þeim veitt viðurkenning á uppskeruhátíð UFA, en hún var haldin 10. janúar s.l.  Hafdís fékk 1058 stig fyrir að hlaupa 400m á 54,16 sek í sumar og Kolbeinn fékk 980 stig fyrir að hlaupa 400m innanhúss á 49,12 sek. Þá er rétt að nefna að Hafdís vann í allt 8 Íslandsmeistaratitla á árinu, var valin spretthlaupari ársins af FRÍ og í Ólympíuhóp FRÍ 2016. Kolbeinn vann í allt 5 Íslands-meistaratitla á árinu. 

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA