Í dag héldu UFA félagar áfram að gera það gott á Stórmóti ÍR. Eins og fram hefur komið setti Kolbeinn Höður Gunnarsson glæsilegt Íslandsmet í 400m hlaupi karla þegar hann hljóp á 48.03 sek. Hafdís Sigurðardóttir sigraði örugglega í 400m hlaupi kvenna á tímanum 56,04 sek. Bjarki Gíslason sigraði í stangarstökki með 5,0m stökki. Rún Árnadóttir sigraði einnig í sínum flokki í stangarstökki þegar hún fór yfir 2,60m og einnig varð hún þriðja í þrístökki. Selma Líf Þórólfsdóttir sveif yfir 1,57m í hástökki og sigraði sinn flokk. Berglind Björk Guðmundsdóttir sigraði 400m hlaupið í sínum flokki örugglega og varð önnur í þrístökki. Ásgerður Jana vann sitt þriðja gull á mótinu með sigri í hástökki og vann bronsverðlaun í 60 m grind.
Það tóku allir vel á því í dag eins og í gær og verður ekki annað sagt en að keppendur UFA hafi verið félagi sínu til mikils sóma og einnig verður að þakka þjálfurunum Unnari Vilhjálmssyni og Gísla Sigurðssyni fyrir ómetanlegt framlag.