
Sex lið eru skráð til þátttöku í Bikarkeppni FRÍ sem fram fer í Laugardalshöll laugardaginn 16. febrúar. Þau eru Breiðablik, FH, HSK, ÍR sem er bæði með A og B lið og sameiginlegt lið Norðurlands, þ.e. UMSS, UMSE, HSÞ og UFA.
Okkar besta fólk er skráð til keppni og er þetta síðasta stóra mótið hér á landi fyrir keppendur sem stefna á að ná lágmörkum fyrir EM inni í Gautaborg í byrjun mars. Kolbeinn Höður mun reyna að ná 48 sek markinu í 400m hlaupinu og verður það örugglega æsispennandi halup þar sem reikna má með því að Trausti og Ívar muni einnig taka þátt. Þá er Hafdís á mikilli siglingu í langstökki og verður fróðlegt að sjá hvað hún gerir. Bjarki náði sér ekki á strik um síðustu helgi í stangarstökki og kemur hann örugglega inn með járnvilja í keppnina núna og ætlar sér yfir 5 metrana og ríflega það. Svo má ekki gleyma Rannveigu, Þorbergi Inga, Ásgerði Jönu, Stefáni, Rakel og Agnesi Evu sem hafa öll verið að bæta sig á mótum síðustu vikna.