Flýtilyklar
Fréttir
Meistaramót Íslands
Ljóst er að mikil keppni verður á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum sem haldið verður í Laugardalshöll um helgina. Keppni hefst kl. 12 á laugardag kl. 11 á sunnudag.UFA á 10 keppendur á mótinu og hafa þau flest verið að gera góða hluti undanfarnar vikur. Það verður því afar fróðlegt að sjá hvernig þeim mun ganga í dag og á morgun. Fylgjast má með úrslitum hér .
Á heimasíðu FRÍ er eftirfarandi umfjöllun um mótið.
Gott mót hjá Hafdísi í Stokkhólmi
Hafdís Sigurðardóttir náði góðum árangri á móti í Svíþjóð um helgina. Hún sigraði í 400m hlaupi þegar hún hljóp á persónulegu meti, 55,89 sek og sigraði einnig í langstökki, eftir hörku keppni, með stökki upp á 6,11 m sem er hennar besti árangur í langstökki á árinu. Hafdís á næstbesta árangur frá upphafi í langstökki innanhúss á eftir Sunnu Gestsdóttur sem á Íslandsmetið, 6,28m. Í 60 m hlaupi komst Hafdís í úrslit og endaði í fimmta sæti.
Fjallað er umþennan frábæra árangur Hafdísar í íþróttafréttum Mbl í dag, sem sjá má hér .
Seinni dagur á MÍ 15-22 ára
Kolbeinn Höður sigraði 200m hlaup 18-19ára á 21,86 sek. sem er hans besti tími.
Agnes Eva Þórarinsdóttir sigraði þrístökk 20-22ára en hún stökk 10,43m.
Stefán Þór Jósefsson varð í 2.sæti í þrístökki 20-22ára með 12,74m, annar í stangarstökki með 3,60m og þriðji í 60m grind á 9,92sek.
Rún Árnadóttir varð önnur í stangarstökki 15ára en hún stökk 2,60m
Þorvaldur Ágúst Jónsson varð í 3.sæti í þrístökki 15ára, stökk 10,88m og einnig í 3.sæti í 200m hlaupi á 25,67sek.
Berglind Björk Guðmundsdóttir varð önnur í þrístökki 15ára með stökk upp á 9,99m
Þetta er flottur árangur og hópurinn í heild var að standa sig mjög vel.