• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Norðurland sigraði bikarinn í karlaflokki

20130216_17.11.06_640_01Bikarkeppni FRÍ 2013 inni er nú lokið og endaði keppni þannig að Norðurland sigraði glæsilega í karlaflokki og konurnar urðu í öðru sæti, rétt á eftir ÍR A. Norðurland varð samanlagt í öðru sæti með 109,5 stig rétt á eftir ÍR A sem var með 119 stig. Þetta verður að teljast frábær árangur hjá keppendum Norðurlands en uppistaðan í liðinu eru keppendur frá UFA, en einnig eru keppendur þar frá UMSE, UMSS og HSÞ.

Þegar horft er til árangurs keppenda UFA, verður ekki annað sagt en að hann hafi verið frábær eins og sjá má hér að neðan:

8395259919_0b1187c644_b_640Hafdís Sigurðardóttir sigraði í langstökki með 6,16m og í 60m hlaupi á sínum besta tíma til þessa eða 7,70 sek. Þá var hún í sveit Norðurlands sem varð önnur í 4x400m boðhlaupi.

Bjarki Gíslason gerði sér lítið fyrir og sigraði í þrístökki með 14,10m og þá sveif hann enn og aftur yfir 5m í stangarstökki og sigraði það einnig.

Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði örugglega í 60m hlaupi á 7,09 sek sem er hans næstbesti árangur og í 400m hlaupi á 48,26 sek sem er einnig hans næstbesti árangur. Þá var hann í sveit Norðurlands sem sigraði í 4x400m hlaupinu.

Rannveig Oddsdóttir sigraði örugglega í 1500m hlaupinu á 4:54,15 mínútum.

Þorbergur Ingi Jónsson sigraði í 1500m hlaupi karla á tímanum 3:59,82 mínútum.

Ásgerður Jana Ágústsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði kúluvarp kvenna með kasti upp á 11,57m og var einnig í sveit Norðurlands sem varð önnur í 4x400m boðhlaupi kvenna.

Agnes Eva Þórarinsdóttir varð þriðja í þrístökki með 10,76m og var einnig í sveit Norðurlands sem varð önnur í 4x400m boðhlaupi kvenna.

Rakel Ósk Björnsdóttir varð þriðja í 400m hlaupi á tímanum 59,32 sek og var einnig í sveit Norðurlands sem varð önnur í 4x400m boðhlaupi kvenna.

Stefán Jósefsson varð fimmti í hástökki þegar hann fór yfir 1,80m.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA