Aðalfundur UFA verður haldinn miðvikudaginn 27. febrúar í sal Brekkuskóla. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20.00. Félagar, vinir og áhugafólk er hvatt til að mæta og taka þátt í fundinum. Eins og venjulega er reiknað með því að allir leggi eitthvað til á hlaðborð að gömlum ungmennafélaga sið. Drykkir verða í boði félagsins. Mætum, eigum góða stund og tökum sameiginlega þátt í að marka félaginu stefnu. Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
- Kosning starfsmanna fundarins.
- Skýrsla stjórnar 2012
- Ársreikningur 2012
- Fjárhags- og starfsáætlun 2013 lögð fram
- Ávörp gesta
- Kosning stjórnar og endurskoðenda
- Önnur mál
- Árgjald félagsins - tillaga er um 2500 kr. á félagsmann. Áætlað til að standa undir rekstri heimasíðu.
- Tillaga um að hverjum iðkanda fylgi minnst einn starfsmaður til starfa hjá félaginu t.d. á mót
- Íslandsmethafar UFA á árinu 2012 heiðraðir
- Kolbeinn Höður Gunnarsson, sem er fyrsti Íslandsmethafi UFA í fullorðinsflokki, heiðraður.
- Enn önnur mál