• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir af aðalfundi

Aðalfundur UFA var haldinn í Brekkuskóla í gærkvöldi og var ágætlega sóttur.

Ný stjórn var kjörin. Úr stjórn gengur Elfar Eiðsson og Theodóra Kristjánsdóttir, í þeirra stað koma Kolbrún Sveinsdóttir og Ólafur Sveinn Traustason inn í stjórnina. Gunnar Gíslason, Rannveig Oddsdóttir, Gyða Árnadóttir, Þórólfur Sveinsson og Þröstur Már Pálmason sitja áfram í stjórn.

Aðalbjörg Hafsteinsdóttir var sæmd starfsmerki UMFÍ. Abba hefur unnið ötullega að málefnum hreyfingarinnar um langt skeið og stutt dyggilega við starf UFA með ýmsum hætti og er vel að þessari viðurkenningu komin.

Íslandsmethöfum síðasta árs, Kolbeini Heði Gunnarssyni, Fríðu Björk Einarsdóttur og Stefáni Brodda Sigvaldasyni, voru veittar viðurkenningar. 

Samþykkt var að leggja 2.500 kr árgjald á félagsmenn 18 ára og eldri. Verður árgjaldið nýtt til að standa straum af kostnaði við heimasíðuna, sem þarfnast orðið endurbóta.

Samþykkt var tillaga um að hverjum iðkanda skuli fylgja einn sjálfboðaliði, sem starfar fyrir félagið á mótum og kemur að öðrum verkefnum sem þarf að sinna til að halda félaginu gangandi.

 

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA