• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Stefán Viđar og Sonja Sif fyrst í vetrarhlaupi

Síðasta Vetrarhlaup vetrarins fór fram á laugardag. Veðurguðirnir sáu til þess að hlauparar fengum vetrarfæri, en þó heldur mildara að þessu sinni en í flestum fyrri hlaupum vetrarins. Fyrstur í mark var Stefán Viðar Sigtryggsson á 38:59, annar var Gunnar Atli Fríðuson á 41:19 og þriðji var Snæþór Aðalsteinsson á 41:42. Í kvennaflokki var Sonja Sif Jóhannsdóttir fyrst á 45:07, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 46:20 og þriðja var Guðrún Arngrímsdóttir á 48:15.

Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun fyrir fyrstu sætin í stigakeppni karla og kvenna og liðakeppni. Í stigakeppni karla bar Þorbergur Ingi Jónsson sigur úr bítum með 20 stigum, annar var Stefán Viðar Sigtryggsson með 13 stig og jafnir í þriðji sæti voru Snæþór Aðalsteinsson og Gunnar Atli Fríðuson með 9 sti. Í kvennaflokki sigraði Rannveig Oddsdóttir með 25 stig, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir með 20 stig og þriðja var Sigríður Björg Einarsdóttir með 19 stig. Hlutu þau íþróttafatnað frá Under Armour í verðlaun.

Í stigakeppni liða sigraði sveit Bjargs, skipuð þeim Rannveigu Oddsdóttur, Sonju Sif Jóhannsdóttur, Sigríði Einarsdóttur, Gunnari Atla Fríðusyni og Halldóri Arinbjarnarsyni og hlutu þau íþróttafatnað frá Craft að launum. Bjarg sveitin sigraði með 24 stigum, jafnar í örðu til þriðja sæti voru Víkingasveitin og Eyarskokk 1 með 16 stig.

Nokkrir heppnir þátttakendur hlutu síðan útdráttarverðlaun frá Halldóri Ólafssyni úr og skart og Nóa Síríus.

Hér má sjá úrslitin úr öllum hlaupunum og í stigakeppni einstaklinga og liða.

Lesa meira

Vetrarhlaup á laugardag

Næstkomandi laugardag, 30. mars, fer síðasta vetrarhlaup þessa vetrar fram. Hlaupið hefst að venju við Bjarg kl. 11:00 og hlaupinn er 10 km hringur. Þó keppt sé í stigakeppni þar sem öll hlaupin sex gefa stig geta allir tekið þátt, þó þeir hafi ekki verið með í fyrri hlaupunum.

Að hlaupi loknu verða veitt verðlaun fyrir stigakeppni einstaklinga og liða og útdráttarverðlaun. Nánari upplýsingar um vetrarhlaupin má sjá hér.

Lesa meira

Vel sóttur hlauparafundur

Stefnumótunar- og aðalfundur langhlaupa- og þríþrautardeildar UFA í gærkvöldi var vel sóttur og náðust góðar umræður um uppbyggingu skokk- og hlaupaíþróttarinnar í bænum. Ný stjórn mun móta áfram þær hugmyndir sem kynntar voru og ræddar á fundinum.

Ný stjórn var kjörin, úr stjórn gengu Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Ingibjörg Halldórsdóttir. Í þeirra stað komu Sævar Helgason og Guðrún Arngrímsdóttir inn í stjórn og Rannveig Oddsdóttir og Elías Gíslason sitja áfram.

Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA