Næstkomandi miðvikudagskvöld kl. 20:30 stendur UFA Eyrarskokk fyrir fyrirlestri um hlaupaþjálfun á Bjargi. Þorbergur Ingi Jónsson og Rannveig Oddsdóttir munu fjalla um undirstöðuatriði hlaupaþjálfunar og svara spurningum eins og; Hvernig nær maður árangri í hlaupum? Hvernig á að byggja upp æfingaprógram? Hve mikið á að hlaupa? Er gagn að því að gera eitthvað annað með? Af hverju sprettæfingar, tempóhlaup, threshold-hraði? Hvað þýða þessi hugtök og hvernig finn ég minn rétta æfingahraða?
Fyrirlesturinn er öllum opinn, aðgangseyrir er kr. 500 fyrir félagsmenn í UFA Eyrarskokki og þátttakendur á hlaupanámskeiði UFA Eyrarskokks, en kr. 1500 fyrir aðra.