Langar ţig ađ hlaupa?
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
Fimmtudaginn 14. mars verður haldinn félagsfundur í Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA. Fundurinn er í senn aðalfundur deildarinnar og stefnumóturnarfundur þar sem rætt verður um starfsemi deildarinnar og kynntar hugmyndir um frekari eflingu hennar. Fundurinn verður haldinn í Síðuskóla og hefst kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn og hvetjum við alla þá sem hafa áhuga á langhlaupum og þríþraut til að mæta og taka þátt í umræðunum.
Aníta Hinriksdóttir hleypur í síðar í dag í undanúrslitum 800 m hlaups kvenna. Hún er í seinni riðlinum sem á skv. tímaseðli að hefjast kl. 16:38 að íslenskum tíma. Fyrstu þrjár komast í úrslit sem eru á morgun. Með Anítu í seinni riðli hlaupsins eru keppendur frá Ukraníu og Rússlandi sem báðar eiga tíma undir 2 mín. best., en Aníta er með 5. besta tíman í síðari riðlinum. Hægt er að fylgjast með hlaupinu og mótinu yfirleitt á netútsendingu hér.