Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
Stjórn langhlaupa- og þríþrautardeildar UFA boðar til fundar miðvikudaginn 17.apríl nk. í Menntaskólanum á Akureyri kl.20:00. Á fundinum verður kynnt nýtt fyrirkomulag varðandi utanumhald félaga í skokk/hlaupahópum bæjarins. Lýðræðislegur fundur þar sem hlauparar fá tækifæri til gagnrýna og/eða lofa tillögur stjórnarinnar. Hvetjum hlaupara, alla sem einn, til þess að mæta á fundinn!!
Næstkomandi laugardag, 13. apríl kl. 10:45–16:00, heldur UFA frjálsíþróttamót í Boganum. Mótið er öllum opið og verður keppt í flokkum frá 9 ára og yngri og upp í karla- og kvennaflokk. Húsið opnar kl. 10:15.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
9 ára og yngri: þrautabraut að hætti þjálfara UFA
10–11 ára og 12–13 ára: 60 m hlaup, 60 m grindahlaup, 600 m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp og skutlukast.
14–15 ára og 16 ára og eldri: 60 m hlaup, 60 m grindahlaup, 600 m hlaup, langstökk, hástökk, stangarstökk og kúluvarp.
Tímaseðil má sjá á mótaforriti FRÍ og þar fer fram skráning á mótið. Skráningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 12:00 föstudaginn 12. apríl.
Skráningargjald er kr. 2000 fyrir 9 ára og yngri og kr. 2500 fyrir 10 ára og eldra (óháð fjölda keppnisgreina). Innifalið í keppnisgjaldi er pizzuveisla. Skráningargjöld greiðist fyrirfram inn á reikning UFA.
Allir keppendur í þrautabraut fá verðlaunapening og veitt verða verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverri grein í öðrum flokkum.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Gunnari í síma 892 1453 og á netfangið gg@akmennt.is