• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Úrslit í kosningahlaupi

Tuttugu hlauparar tóku þátt í hálfmaraþoni UFA Eyrarskokks í morgun. Í strekkingsvindi en en óvenju mildu veðri svona miðað við það sem við höfum átt að venjast hér undanfarna mánuði. Fyrstur í mark var Stefán Viðar Sigtryggsson á 1:32:05. annar var Óskar Jakobsson á 1:33:42 og þriðji var Finnur Dagsson á 1:35:26. Fyrst kvenna var Hrönn Guðmundsdóttir á 1:43:33, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 1:44:13 og þriðja var Bryndís María Davíðsdóttir á 1:51:22. Tíma allra sem hlupu má sjá hér.

Lesa meira

Kosningahlaup

Laugardaginn 27. apríl næstkomandi stendur UFA-Eyrarskokk fyrir hálfu maraþoni á Akureyri.  Hlaupið verður frá líkamsræktarstöðinni Átaki, inn í Eyjafjörð að snúningspunkti og sama leið til baka. Drykkjarstöðvar verða á leiðinni. Öllum þátttakendum stendur til boða að nota búningsaðstöðu og fara í heitan pott að loknu hlaupi í Átaki.

Nánari upplýsingar hér.
Lesa meira

UFA Eyrarskokk tekur til starfa 4. maí

Hlauparar í bænum hafa nú ákveðið að sameina nokkra minni hlaupahópa í einn öflugan hóp undir merkjum UFA og Eyrarskokks. Nýi hópurinn mun bjóða upp á æfingar fyrir jafnt byrjendur sem lengra komna, hægfara sem hraðfara og vonumst við til að geta byggt upp breiðan og öflugan hóp þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má sjá upplýsingar um fyrirkomulag æfinga og frekari kynning á hópnum mun birtast hér á síðunni á næstu dögum. Hópurinn tekur síðan formlega til starfa laugardaginn 4. maí.

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA