Hópurinn er nú kominn á áfangastað og mun mánudagurinn vera nýttur til hins ýtrasta í undirbúning fyrir keppnina sem hefst á þriðjudag. Hægt verður að fylgjast með hópnum á facebooksíðu ÍSÍ. Þar má meðal annars finna myndir frá ferðadeginum. Einnig minnum við á heimasíðu leikanna. sem er http://www.luxembourg2013.lu. Á heimasíðu leikanna er hægt að nálgast app fyrir snjallsíma sem veitir allar helstu upplýsingar.
Hafdís keppir í 100m og 200m hlaupum, langstökki og 4x100 og 4x400m boðhlaupum
Kolbeinn Höður keppir í 100m og 400m hlaupum og 4x100 og 4x400m boðhlaupum
Rannveig keppir í 5000m og 10.000m hlaupum.