• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Úrslit af Landsmóti í Kópavogi

Það hefur nú varla farið fram hjá neinum að um síðustu helgi fór 25. landsmót UMFÍ fram í Kópavogi.  Við sendum sameiginlegt lið UFA og UMSE á mótið eins og á Sauðárkróki 2004.  Okkar fólk stóð sig mjög vel og áttum við mun oftar keppendur í verðlaunasætum en á síðustu landsmótum og átti UFA alls 15 sinnum fulltrúa á palli.

Hulda Margrét Hauksdóttir vann silfur í stangarstökki með 2,60m.  Þá varð hún í 6. sæti í kúluvarpi með 9,99m.
Bjartmar Örnuson hampaði bronsi í 800m hlaupi á tímanum 1:58,12 sek.  Hann varð 6. í þremur hlaupum; 400m á 52,63sek, 1500m á 4.11,53sek og í 5000m á 16.46,71sek.
Inga Vala Gísladóttir varð 4. í 800m á 2.26,03sek.
Bjarki Gíslason náði bronsi í þrístökki með stökki upp á 13,89m.  Hann varð einnig 4. bæði í stöng með 4,00m og í 110m grindahlaupi á tímanum 16,60sek.
Þorsteinn Helgi Guðmundsson varð 5. í 110m grind á 17,47sek.
Elvar Freyr Pálsson varð 6. í sama grindahlaupi á 21,03sek.

Kvennasveitin í 4x100m boðlhaupi varð 6. á tímanum 52,29sek en hana skipuðu Steinunn Erla Davíðsdóttir (UMSE), Ebba Karen Garðarsdóttir, Valgerður Þorsteinsdóttir og Erla Rán Friðriksdóttir.

Í 1000m boðhlaupi enduðu báðar sveitirnar í 5. sæti.  Í kvennasveitinni voru Erla Rán, Ebba Karen, Steinunn Erla og Inga Vala og hlupu þær á 2:28,66sek.  Karlasveitina hljóp á 2:07,88sek og í henni hlupu Þorsteinn Helgi, Bjarki, Kristján Rögnvaldsson (UMSE) og Bjartmar.

Í stigakeppninni endaði sameiginlegt lið UFA/UMSE í 7. sæti í frjálsíþróttakeppninni með 145 stig. 
Í heildarstigakeppni alls mótsins urðum við í 4. sæti og munaði þar um breidd UMSE manna.  Keppendur voru sendir í flestar ef ekki allar starfsgreinarnar og einnig voru lið bæði í skák og bridge. 

Þetta var því viðburðarrík helgi og má með sanni segja að mikið hafi verið um að vera á flestum vígstöðum.  Eins og flestum er ljóst mun 26. landsmót UMFÍ fara fram hér á Akureyri árið 2009. Þá eru liðin 100 ár frá því að fyrsta landsmótið var haldið einmitt á Akureyri.  Voru flestir af okkar liði með þá staðreynd ofarlega í huga á meðan á landsmótinu í Kópavogi stóð og voru með augu og eyru opin í því skyni að viða að sér reynslu sem nýta má við okkar afmælismót. 

Lesa meira

MÍ 12 -14 ára síđasti skránigardagur á morgun mánudag

Enn vantar foreldri með sem fararstjóra þetta verða um 10 krakkar. Munið að skila skráningarblöðum til þjálfara á æfingunni á morgun þau sem enn eru eftir.
Lesa meira

Fréttir af Landsmóti í Kópavogi

Nú er tveimur keppnisdögum af fjórum lokið á Landsmótinu í Kópavogi.
Hingað til hafa mótshaldarar, keppendur og gestir verið heppnir með veður því það hefur verið heitt, sólin hefur aðeins látið sjá sig og aðeins rignt að næturlagi.  Vindur hefur þó verið til trafala fyrir þá sem stunda tæknigreinar því hann hefur átt það til að breytast mjög snögglega og blása skyndilega úr gagnstæðri átt.

Að þessum tveimur dögum loknum hefur UFA átt 3 keppendur á palli.  Þess ber að geta að á Landsmótum UMFÍ eru 6 verðlaunasæti í öllum greinum.
Hulda Margrét Hauksdóttir háði harða baráttu í kúluvarpi og hafnaði í 6. sæti með kasti upp á 9,99m.  
Inga Vala Gísladóttir varð 4. í 800m hlaupi sem fram fór á setningunni fyrir framan fjölda fólks.  Hún hljóp á tímanum 2.26,03. 
Bjartmar Örnuson náði 3. sætinu í 800m hlaupi eftir æsispennandi keppni.  Hann hljóp á 1.58,12 og var rétt rúmri sekúndu á eftir fyrsta manni.  Mikill barningur var í hlaupinu og voru hlaupararni níu í þéttum hópi nánast alla leiðina.  Úrslitin réðust rétt á síðustu metrunum og ætlaði allt um koll að keyra í áhorfendastúkunum. 

Úrslit eiga eftir að ráðast í mörgum greinum þar sem fulltrúar UFA hafa unnið sér keppnisrétt með góðu gengi í undanrásum.  Nánari skil verða gerð á frekara gengi keppenda síðar en bendi ég áhugasömum á að skoða www.mot.fri.is þar sem hægt er að nálgast úrslitin undir tenglinum "25.Landsmót UMFÍ 2007". 

Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA