Nú er tveimur keppnisdögum af fjórum lokið á Landsmótinu í Kópavogi.
Hingað til hafa mótshaldarar, keppendur og gestir verið heppnir með veður því það hefur verið heitt, sólin hefur aðeins látið sjá sig og aðeins rignt að næturlagi. Vindur hefur þó verið til trafala fyrir þá sem stunda tæknigreinar því hann hefur átt það til að breytast mjög snögglega og blása skyndilega úr gagnstæðri átt.
Að þessum tveimur dögum loknum hefur UFA átt 3 keppendur á palli. Þess ber að geta að á Landsmótum UMFÍ eru 6 verðlaunasæti í öllum greinum.
Hulda Margrét Hauksdóttir háði harða baráttu í kúluvarpi og hafnaði í 6. sæti með kasti upp á 9,99m.
Inga Vala Gísladóttir varð 4. í 800m hlaupi sem fram fór á setningunni fyrir framan fjölda fólks. Hún hljóp á tímanum 2.26,03.
Bjartmar Örnuson náði 3. sætinu í 800m hlaupi eftir æsispennandi keppni. Hann hljóp á 1.58,12 og var rétt rúmri sekúndu á eftir fyrsta manni. Mikill barningur var í hlaupinu og voru hlaupararni níu í þéttum hópi nánast alla leiðina. Úrslitin réðust rétt á síðustu metrunum og ætlaði allt um koll að keyra í áhorfendastúkunum.
Úrslit eiga eftir að ráðast í mörgum greinum þar sem fulltrúar UFA hafa unnið sér keppnisrétt með góðu gengi í undanrásum. Nánari skil verða gerð á frekara gengi keppenda síðar en bendi ég áhugasömum á að skoða www.mot.fri.is þar sem hægt er að nálgast úrslitin undir tenglinum "25.Landsmót UMFÍ 2007".