• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Fréttir

UFA og KEA undirrita samning vegna Akureyrarhlaups

Forsvarsmenn KEA og UFA hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning vegna Akureyrarhlaups.  KEA mun verða aðalstyrktaraðili hlaupsins næstu þrjú ár og mun hlaupið heita Akureyrarhlaup KEA.
Í ár verður hlaupið haldið þann 15. september og er markmið samstarfssamningsins að efla umfang hlaupsins og gera það að meiri og stærri viðburði á landsvísu.  KEA og UFA munu hvetja til almennrar þátttöku í hlaupinu og jafnframt hvetja fólk á öllum aldri til að taka þátt í hlaupa- eða gönguhópum sem fara í gang í byrjun ágúst.
Hér er að finna nánari upplýsingar um hlaupið.

Lesa meira

Foreldrafundur

Þökkum ykkur kærlega fyrir komuna á fundinn í gær og vonum að þið hafið orðið einhvers vísari um starfið hjá okkur.
Lesa meira

MÍ 12-14 ára

MÍ 12-14 ára 14.-15. júlí í Borgarnesi.Tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi mánudaginn 9. júlí, hægt er að sjá allar upplýsingar um mótið fri.is mótaskrá MÍ 12-14 ára.  Við reiknum með að kostnaður verði 5-7000 krónur eftir því hvernig farið verður, innifalið ferðir, gisting, morgunmatur og kvöldmatur á laugardag,félagið borgar mótsgjöldin.  Mótið hefst á laugardagsmorgni og líkur seinnipart sunnudags líkleg brottför er kl. 17:00 á föstudegi.   Ef einhverjir foreldrar gætu keyrt eða verið fararstjórar eru þeir vinsamlegast beðnir að láta vita fyrir næsta mánudag 2. júlí hjá þjálfurum eða formanni.  Gísli 8919196, Birgitta 8625839, Guðmundur Víðir 8490568 eða Katrínu katoti@simnet.is.  Erum að fá nýja félagsgalla verðið á þeim verður 6000-6500 krónur látið Katrínu vita sem fyrst ef þið viljið hann, keppnisgallar kosta 4.000 krónur.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA