• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Glæsilegur árangur á MÍ 12-14 ára

Í gær komu krakkarnir okkar heim af MÍ 12-14 ára, sem að þessu sinni var haldið í Borgarnesi.  Þrettán krakkar fóru með Unnari og tveimur foreldrum og komu þau heim hlaðin titlum og tilheyrandi viðurkenningum. 

Andri Már Bragason varð Íslandsmeistari í flokki 13 ára pilta í tveimur greinum; í 100m hlaupi á 13,89sek og í 80m grindahlaupi á 14,78sek.  Við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn!

Í flokki 12 ára stráka nældi Bjarki Kjartanson sér í silfur í hástökki og brons í 60m hlaupi og Geir Vésteinsson vann brons í spjótkasti.
Í flokki 13 ára pilta vann Andri áðurnefnd gullverðlaun og Hjalti Björnsson fékk silfur í spjótkasti og brons í 100m hlaupi, auk þess náði boðhlaupssveitin 2. besta tímanum og þar með silfri.
Í flokki 13 ára telpna hampaði Elise Marie Valjaots silfri í hástökki.
Í flokki 14 ára pilta fékk Snorri Björn Atlason silfur í spjótkasti og brons í 100m hlaupi og Ómar Friðriksson náði bronsi í spjótkasti.  Boðhlaupssveitin var með 2. besta timann, líkt og í yngri flokknum, og vann því silfurverðlaun.
Í flokki 14 ára telpna vann Agnes Eva Þórarinsdóttir brons í langstökki og spjótkasti og Heiðrún Dís Stefánsdóttir fékk brons í kúluvarpi og 80m grindahlaupi.  Í boðhlaupi unnu þær einnig bronsverðlaun.

Eftir þessa löngu upptalningu á öllum titlunum þarf ekki að koma neinum á óvart að UFA hafi verið ofarlega í stigakeppninni.  Í öllum strákaflokkunum, þ.e. flokki 12 ára stráka, 13 ára og 14 ára, náðu þeir 2. sætinu í stigakeppninni.  Telpurnar í 14 ára flokknum urðu 3. í röðinni.  Í heildarstigakeppninni varð UFA í 3. sæti sem er frábær árangur miðað við að vera með mun færri keppendur en liðin í næstu sætum fyrir ofan og neðan. 

Þótt ekki hafi allir unnið hina eftirsóttu titla þá voru allir að standa sig mjög vel og bæta sinn persónulega árangur í mörgum greinum.  Við óskum krökkunum til hamingju með ferðina!


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA